Kaupa Auglýsingu
Sértilboð á mánaðar auglýsingu!:
200 birtingar fyrir 90 þúsund krónur + vsk. á mánuði. Það gerist ekki betra! Auglýsingin þín birtist í þremur þáttum á viku á ÍNN í fjórar vikur. Hver þáttur er sýndur 12 sinnum sama dag og hann er frumsýndur. Einnig er hver þáttur endursýndur 3-4 sinnum helgina á eftir. Miðað er við 10 sekúndna auglýsingu.Alveg einstakt tilboð á auglýsingu í lok þáttar eða fyrir hlé:
- Við setjum lógóið þitt ásamt slagorði inn í þáttinn
- Birtist neðst á skjánum í 15 sekúndur, áður en þáttur endar eða fyrir auglýsingahlé
- Auglýsingin birtist í viðkomandi þætti bæði í sjónvarpsútsendingu og á netinu
- Birtist í öllum endursýningum líka
- Þetta er auglýsing sem fáir missir af
Samanlagt: kr 10.000 pr. birtingu í þætti (án vsk.)
Við gerum auglýsinguna fyrir þig!
- Grafík vinnsla: Við búum til auglýsingu fyrir þig alveg frá grunni og notumst við lógó, myndefni og texta sem auglýsandi leggur okkur til.
- Myndbandavinnsla: Við breytum gömlu auglýsingunni þinni, hvort sem hún er gömul sjónvarps auglýsing eða blaða auglýsing þá getum við breytt henni í stafrænt form sem hentar nútímasútsendingu í sjónvarpi
- Hljóðsetning: Við hljóðsetjum! Við lesum inn umbeðinn texta og setjum tónlist undir þar sem slíkt hentar.
- Við erum með græntjalds tæknibúnað
Nánari upplýsingar í auglýsingasíma ÍNN, sími: 568-1560
Einnig hægt að senda fyrirspurn á: inntv@inntv.is
?Það skýrist á næstu dögum hvort við fáum einhverju áorkað í þessum málum,? segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og svarar þannig spurningunni hvenær tíðinda sé að vænta í skuldamálum heimilanna.
Mikill öryggisviðbúnaður verður í Chicago í Bandaríkjunum í tengslum við NATO-ráðstefnu sem hefst í borginni á sunnudag. Talsmaður bandarísku alríkislögrelgunnar (FBI) segir að þrátt fyrir að engin sérstök ógn steðji að ráðstefnugestum þá sé viðbúnaðarstigið hátt.
Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 16 spænskra banka um einn til þrjá flokka. Matsfyrirtækið segir að áframhaldandi efnahagssamdráttur á Spáni og lækkað lánshæfi spænskra stjórnvalda hafi leitt til þess að einkunn bankanna var færð niður.
?Mjög margir gefa ekki upp afstöðu sína eða segjast ekki ætla að taka þátt, stærri hluti en nokkru sinni áður í sögu skoðanakannana á Íslandi. Sá hluti hefur verið stöðugur, í kringum 50%, í tvö ár. Það hefur ekki gerst áður. Við það bætist pólitísk upplausn,? segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að höfuðstöðvum Vífilfells við Stuðlaháls í Reykjavík á áttunda tímanum í kvöld. Þar fór viðvörunarkerfi í húsinu af stað og óskaði vaktmaður eftir aðstoð slökkviliðs vegna reyks.
Ekkert lát er á getgátum um hver tekur við ensku deildabikarmeisturunum í Liverpool. Pep Guardiola, fráfarandi stjóri Katalóníustórveldisins Barcelona, er nú nefndur til sögunnar sem hugsanlegur eftirmaður Kenny Dalglish. 