Hrafnaþing

Hrafnaþing er einn vinsælasti spjallþáttur í íslensku sjónvarpi í dag og hefur verið um árabil. Ingvi Hrafn Jónsson hefur stjórnað þættinum í útvarpi sem og í sjónvarpi. Saga Hrafnaþings hófst á útvarpsstöðinni Matthildi seint á síðustu öld og hafa vinsældir hans aukist með hverju árinu. Hrafnaþing færði sig svo um set yfir á útvarp Sögu sem þá var hluti af Norðurljósum hf., en þegar kom að því að loka þurfti stöðinni tóku þáttgerðamenn sig til og keyptu útvarp Sögu og hófu sjálfstæðan rekstur.

Samstarfið var þó skammlíft og slitnaði uppúr því fljótlega á árinu 2005 og í kjölfarið fór Hrafnaþing yfir á Talstöðina. Þar héldur vinsældir Hrafnaþings áfram að aukast þar til tekin var sú ákvörðun að færa þáttinn yfir í sjónvarp sem hluta af dagskrá Nýju fréttastöðvarinnar eða NFS.

Í lok september árið 2006 var ákveðið að hætta rekstri NFS og hvarf því Hrafnaþing af skjánum. Nú hefur Hrafnaþing snúið aftur á skjáinn á ÍNN . Þáttastjórnandinn Ingvi Hrafn Jónsson haldur áfram að fá góða gesti til sín og að sjálfsögðu, tala tæpitungulaust um allt sem honum dettur til hugar.

Tölvur, tækni og vísindi

Ólafur Kristjánsson sýnir okkur inn í heim tækni, vísinda og tölva.

Tveggja manna tal

Jón Baldvin á tveggja manna tal við gesti.

Heilsuþáttur Jóhönnu

Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjallar um allt það sem tengist heilsu fólks.

Græðlingur

Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingurinn snjalli hefur heillað áhorfendur með einstakri leiðsögn sinni um heim ræktunar og nýtingar garðávaxta

Motoring

Þáttur um mótorsport

Bubbi og Lobbi

Stjórnmálaskýrendurnir Bubbi og Lobbi segja frá því sem er að gerast í pólitíkinni á sinn einstaka og fræðandi hátt.

Ævintýraboxið

Eldað úr lambi.

Sjávarútvegur á ögurstundu

Saga sjávarútvegs á íslandi rakin.

Björn Bjarna

Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra mennta-, dóms og kirkjumála brýtur til mergjar málefni líðandi stundar með gestum sínum

Eldhús Meistaranna

Magnús Ingi Magnússon meistarakokkur á Sjávarbarnum skygnist bakvið tjöldin á flottustu veitingahúsum landsins.

Frumkvöðlar

Hún er frumkvöðull og hefur rekið nýsköpunarfyrirtæki í 10 ár. Hún var formaður frumkvöðla og uppfinningamanna 1998-2007 en stofnaði þá KVENN, félag kvenna í nýsköpun. Hún býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á málefnum nýsköpunar hérlendis og erlendis og þeir sem vilja nánari upplýsingar eru hvattir til þess að hafa samband við uppfinning@gmail.com

Svartar Tungur

Svartar Tungur er pólitískur þáttur í umsjá þingmanna úr þremur flokkum. Sigmundur Ernir, Birkir Jón og Tryggvi Þór.

Sælgæti úr sjó

Matreiðsla með fiskikónginum sjálfum.

Einar Kristinn og sjávarútvegur

Einar K. Guðfinnsson fyrrum sjávarútvegsráðherra fer yffir málin.

Eldað með Holta

Kjúklingur er úrvals hráefni

Gestagangur hjá Randver

Randver Þorláksson fær til sín gesti.

Veiðisumarið

Veiðiþáttur í umsjá Gunnars Bender og félaga.

Undir Feldi

Frosti Logason og Heimir Hannesson taka umræðuna um Evrópumálin föstum tökum.

Kolgeitin

Tónlistarþáttur í umsjá Sigtryggs "Bogomil Font"

Eldhús Lambsins

Eldað úr lambi.

Vínsmakkarinn

Þáttur um vín.

Gaman saman

Gamanþáttur á ÍNN

Undur Kenía

Ferðalag um Kenía.

Föstudagur 18.05.2012

Dagskrá ÍNN

Fréttir af Mbl.is

22:31  Skuldamálin að fara að skýrast
Margrét Tryggvadóttir alþingismaður. ?Það skýrist á næstu dögum hvort við fáum einhverju áorkað í þessum málum,? segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og svarar þannig spurningunni hvenær tíðinda sé að vænta í skuldamálum heimilanna.
22:21  Mikill viðbúnaður í Chicago
Fjölmargir mótmælendur eru þegar samankomnir í Chicago. NATO-ráðstefnan mun svo hefjast um næstu helgi. Mikill öryggisviðbúnaður verður í Chicago í Bandaríkjunum í tengslum við NATO-ráðstefnu sem hefst í borginni á sunnudag. Talsmaður bandarísku alríkislögrelgunnar (FBI) segir að þrátt fyrir að engin sérstök ógn steðji að ráðstefnugestum þá sé viðbúnaðarstigið hátt.
21:39  Lækka lánshæfi 16 spænskra banka
Santander er stærsti banki Spánar. Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 16 spænskra banka um einn til þrjá flokka. Matsfyrirtækið segir að áframhaldandi efnahagssamdráttur á Spáni og lækkað lánshæfi spænskra stjórnvalda hafi leitt til þess að einkunn bankanna var færð niður.
22:14  „Ekkert að marka kannanir“
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. ?Mjög margir gefa ekki upp afstöðu sína eða segjast ekki ætla að taka þátt, stærri hluti en nokkru sinni áður í sögu skoðanakannana á Íslandi. Sá hluti hefur verið stöðugur, í kringum 50%, í tvö ár. Það hefur ekki gerst áður. Við það bætist pólitísk upplausn,? segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
22:00  Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið
Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti.
21:49  Þvottavél föst á suðu
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að höfuðstöðvum Vífilfells við Stuðlaháls í Reykjavík á áttunda tímanum í kvöld. Þar fór viðvörunarkerfi í húsinu af stað og óskaði vaktmaður eftir aðstoð slökkviliðs vegna reyks.
23:10  Guardiola til Liverpool?
Guardiola í tapleiknum á móti Chelsea á Nou Camp í apríl. Ekkert lát er á getgátum um hver tekur við ensku deildabikarmeisturunum í Liverpool. Pep Guardiola, fráfarandi stjóri Katalóníustórveldisins Barcelona, er nú nefndur til sögunnar sem hugsanlegur eftirmaður Kenny Dalglish.