Veldu síðu til að sjá eldri þætti:
Þættir
Mars - 2011
Febrúar - 2011
24/02/2011
Elvar Örn Arason og Arnar Ólafsson kynna síðuna kannski.is þar sem áhugasömum gefst kostur á að varpa fram spurningu og fá svo bæði svar frá já- og nei hreyfingunum.
Síðar í þættinum kemur Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis símenntunar sem ætlar að segja frá fundaröð þeirra með hinum ýmsu fulltrúum samninganefndarinnar, ásamt því að gefa okkur innsýn í starfssemi Mímis.
17/02/2011
Vilhjálmur Þorsteinsson, athafnamaður og stjórnarformaður CCP ræðir um ástæður fyrir sinni skoðun á Evrópumálunum.
10/02/2011
Gestur kvöldsins er Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍU, Landssambands Íslenskra Útvegsmanna. Friðrik segir okkur frá afstöðu íslenskra útgerðarmanna gagnvart Evrópusambandinu.
Janúar - 2011
27/01/2011
Frosti Sigurjónsson framkvæmdastjóri, stjórnarmaður í Heimssýn, íslensku nei-hreyfingarinnar ræðir um galla ESB og afhverju Ísland á ekki heima í Evrópusambandinu.
13/01/2011
Halldór Halldórsson, formaður Sambands Íslenskra Sveitarfélaga, ræðir um möguleika Íslenskra sveitarfélaga og byggðalaga innan ESB auk afstöðu þeirra og þátttöku í aðildarferlinu, viðræðunum o.fl.
Desember - 2010
16/12/2010
Erna Bjarnadóttir sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum útskýrir afstöðu íslenskra bænda gagnvart Evrópusambandsumsókninni og hugsanlegri aðild Íslands.
02/12/2010
Gestur þáttarins að þessu sinni er Dr. Baldur Þórhallsson, prófessor í Stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Baldur er einnig forstöðumaður smáríkjafræðaseturs við Háskóla Íslands og ræðir hér við þáttastjórnendur um möguleika smáríkja, þmt. Íslands innan ESB.
Nóvember - 2010
18/11/2010
Evrópumálin eru hér skýrð frá sjónarhorni fræðimannsins. Stjórnmálafræðingurinn Dr. Eiríkur Bergmann forstöðumaður Evrópufræðaseturs. Eiríkur ræðir um hvað það er sem veldur afstöðu Íslendinga gagnvart ESB, hvort sem hún er með eða á móti.
?Það skýrist á næstu dögum hvort við fáum einhverju áorkað í þessum málum,? segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og svarar þannig spurningunni hvenær tíðinda sé að vænta í skuldamálum heimilanna.
Mikill öryggisviðbúnaður verður í Chicago í Bandaríkjunum í tengslum við NATO-ráðstefnu sem hefst í borginni á sunnudag. Talsmaður bandarísku alríkislögrelgunnar (FBI) segir að þrátt fyrir að engin sérstök ógn steðji að ráðstefnugestum þá sé viðbúnaðarstigið hátt.
Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 16 spænskra banka um einn til þrjá flokka. Matsfyrirtækið segir að áframhaldandi efnahagssamdráttur á Spáni og lækkað lánshæfi spænskra stjórnvalda hafi leitt til þess að einkunn bankanna var færð niður.
?Mjög margir gefa ekki upp afstöðu sína eða segjast ekki ætla að taka þátt, stærri hluti en nokkru sinni áður í sögu skoðanakannana á Íslandi. Sá hluti hefur verið stöðugur, í kringum 50%, í tvö ár. Það hefur ekki gerst áður. Við það bætist pólitísk upplausn,? segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að höfuðstöðvum Vífilfells við Stuðlaháls í Reykjavík á áttunda tímanum í kvöld. Þar fór viðvörunarkerfi í húsinu af stað og óskaði vaktmaður eftir aðstoð slökkviliðs vegna reyks.
Ekkert lát er á getgátum um hver tekur við ensku deildabikarmeisturunum í Liverpool. Pep Guardiola, fráfarandi stjóri Katalóníustórveldisins Barcelona, er nú nefndur til sögunnar sem hugsanlegur eftirmaður Kenny Dalglish. 