Síðan sem þú ert að reyna að nálgast er ekki til.
Vinsamlegast veldu síðu frá forsíðunni.

Laugardagur 04.02.2012

Dagskrá ÍNN

Fréttir af Mbl.is

05:30  Kostar allt að 88 milljónir
Landlæknir væntir þess að byrjað verði á aðgerðum sem fyrst. Af 41 konu með PIP-brjóstapúða sem hefur verið ómskoðuð eru 34 með leka púða. Samsvarar fjöldinn því að rúmlega 80% kvennanna séu með leka púða en gert hafði verið ráð fyrir að hlutfallið myndi nema frá 1-7%.
07:33  Aldrei fleiri borgarar fallið
Það er vetur í Afganistan. Börn standa í snjónum í flóttamannabúðum í Kabúl. Ekki hafa fleiri borgarar týnd lífi vegna stríðsins í Afganistan á einu ári og í fyrra eða samtals 3.021. NATO og afganskar öryggissveitir bera árbyrgð á 410 dauðsföllum. Þetta kemur fram í skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum.
05:30  Stöðugt færri bílar úreltir
Hrun hefur orðið í úreldingu bíla frá hruni. Segja má að hrun hafi orðið í úreldingu bifreiða frá hruninu haustið 2008. Skilagjald var greitt vegna úreldingar um 2.800 bifreiða á nýliðnu ári og hefur aldrei verið greitt vegna svo fárra bíla frá því að núverandi kerfi var tekið upp í lok árs 2004.
07:51  Fyrir herrétt vegna Wikileaks
Bradley Manning, með gleraugu fyrir miðri mynd. Bandaríski hermaðurinn Bradley Manning þarf að koma fyrir herdómstól í landinu vegna gruns um að hafa lekið mikilvægum öryggisupplýsingum til Wikileaks. Meðal gagnanna var myndband af þyrluflugmönnum að skjóta á borgara.
06:50  Ekið undir áhrifum fíkniefna
Átta ökumenn voru teknir af lögreglu nótt grunaðir um annað hvort ölvunar-eða fíkniefnaakstur. Í tveimur tilvikum reyndust ökumennirnir án ökuréttinda.
05:30  Skil á flöskum og dósum slá met
Plast og ál er endurunnið og verður á ný að verðmætum. Metár var í skilum á umbúðum af drykkjarvörum á síðasta ári. Af seldum umbúðum skiluðu 86,5% sér í endurvinnslu gegn greiðslu og voru greiddar 1400 milljónir króna í skilagjald í fyrra. Er þetta hækkun um 200 milljónir frá árinu á undan.
05:31  Slydda fram á daginn
Austan- og suðaustanátt, 10-15 m/s, og rigning eða slydda fram á daginn, en sums staðar snjókoma fyrir norðan. Snýst í vestan og norðvestan 10-18 í dag, hvassast með suðurströndinni og rigning eða slydda með köflum. Hægara og úrkomulítið austanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast sunnan til.