Hrafnaþing
Hrafnaþing er einn vinsælasti spjallþáttur í íslensku sjónvarpi í dag og hefur verið um árabil. Ingvi Hrafn Jónsson hefur stjórnað þættinum í útvarpi sem og í sjónvarpi. Saga Hrafnaþings hófst á útvarpsstöðinni Matthildi seint á síðustu öld og hafa vinsældir hans aukist með hverju árinu. Hrafnaþing færði sig svo um set yfir á útvarp Sögu sem þá var hluti af Norðurljósum hf., en þegar kom að því að loka þurfti stöðinni tóku þáttgerðamenn sig til og keyptu útvarp Sögu og hófu sjálfstæðan rekstur.
Samstarfið var þó skammlíft og slitnaði uppúr því fljótlega á árinu 2005 og í kjölfarið fór Hrafnaþing yfir á Talstöðina. Þar héldur vinsældir Hrafnaþings áfram að aukast þar til tekin var sú ákvörðun að færa þáttinn yfir í sjónvarp sem hluta af dagskrá Nýju fréttastöðvarinnar eða NFS.
Í lok september árið 2006 var ákveðið að hætta rekstri NFS og hvarf því Hrafnaþing af skjánum. Nú hefur Hrafnaþing snúið aftur á skjáinn á ÍNN . Þáttastjórnandinn Ingvi Hrafn Jónsson haldur áfram að fá góða gesti til sín og að sjálfsögðu, tala tæpitungulaust um allt sem honum dettur til hugar.
Af 41 konu með PIP-brjóstapúða sem hefur verið ómskoðuð eru 34 með leka púða. Samsvarar fjöldinn því að rúmlega 80% kvennanna séu með leka púða en gert hafði verið ráð fyrir að hlutfallið myndi nema frá 1-7%.
Ekki hafa fleiri borgarar týnd lífi vegna stríðsins í Afganistan á einu ári og í fyrra eða samtals 3.021. NATO og afganskar öryggissveitir bera árbyrgð á 410 dauðsföllum. Þetta kemur fram í skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum.
Segja má að hrun hafi orðið í úreldingu bifreiða frá hruninu haustið 2008. Skilagjald var greitt vegna úreldingar um 2.800 bifreiða á nýliðnu ári og hefur aldrei verið greitt vegna svo fárra bíla frá því að núverandi kerfi var tekið upp í lok árs 2004.
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) hefur fengið viðbótarfjármagn frá ríkinu, um 30 milljónir króna, vegna rekstrar þessa árs. Einar Rafn Haraldsson, forstjóri HSA, segir þetta gera það að verkum að ekki þurfi að loka Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í sumar, eins og til stóð.
Átta ökumenn voru teknir af lögreglu nótt grunaðir um annað hvort ölvunar-eða fíkniefnaakstur. Í tveimur tilvikum reyndust ökumennirnir án ökuréttinda.
Metár var í skilum á umbúðum af drykkjarvörum á síðasta ári. Af seldum umbúðum skiluðu 86,5% sér í endurvinnslu gegn greiðslu og voru greiddar 1400 milljónir króna í skilagjald í fyrra. Er þetta hækkun um 200 milljónir frá árinu á undan. 