Frumkvöðlar
Hún er frumkvöðull og hefur rekið nýsköpunarfyrirtæki í 10 ár. Hún var formaður frumkvöðla og uppfinningamanna 1998-2007 en stofnaði þá KVENN, félag kvenna í nýsköpun. Hún býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á málefnum nýsköpunar hérlendis og erlendis og þeir sem vilja nánari upplýsingar eru hvattir til þess að hafa samband við uppfinning@gmail.comVeldu síðu til að sjá eldri þætti:
Þættir
Maí - 2012
Apríl - 2012
30/04/2012
Elínóra sækir alla fundi og ráðstefnur um nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og miðlar þekkingu sinni.
Mars - 2012
26/03/2012
Sirrý Klemenzdóttir fjallar um Þetta stúdíó og Dýrahjálp Íslands Viltu ættleiða dýr? Vantar þig ljósmyndara?
12/03/2012
Ásdís Guðmundsdóttir frá Vinnumálastofnun og frumkvöðlakonurnar Katrín Silvía Símonardóttir með Kasy Swimwear, Helga Arnardóttir og Signý Kolbeinsdóttir með www.tulipop.com
?Það skýrist á næstu dögum hvort við fáum einhverju áorkað í þessum málum,? segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og svarar þannig spurningunni hvenær tíðinda sé að vænta í skuldamálum heimilanna.
Mikill öryggisviðbúnaður verður í Chicago í Bandaríkjunum í tengslum við NATO-ráðstefnu sem hefst í borginni á sunnudag. Talsmaður bandarísku alríkislögrelgunnar (FBI) segir að þrátt fyrir að engin sérstök ógn steðji að ráðstefnugestum þá sé viðbúnaðarstigið hátt.
Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 16 spænskra banka um einn til þrjá flokka. Matsfyrirtækið segir að áframhaldandi efnahagssamdráttur á Spáni og lækkað lánshæfi spænskra stjórnvalda hafi leitt til þess að einkunn bankanna var færð niður.
?Mjög margir gefa ekki upp afstöðu sína eða segjast ekki ætla að taka þátt, stærri hluti en nokkru sinni áður í sögu skoðanakannana á Íslandi. Sá hluti hefur verið stöðugur, í kringum 50%, í tvö ár. Það hefur ekki gerst áður. Við það bætist pólitísk upplausn,? segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að höfuðstöðvum Vífilfells við Stuðlaháls í Reykjavík á áttunda tímanum í kvöld. Þar fór viðvörunarkerfi í húsinu af stað og óskaði vaktmaður eftir aðstoð slökkviliðs vegna reyks.
Ekkert lát er á getgátum um hver tekur við ensku deildabikarmeisturunum í Liverpool. Pep Guardiola, fráfarandi stjóri Katalóníustórveldisins Barcelona, er nú nefndur til sögunnar sem hugsanlegur eftirmaður Kenny Dalglish. 