Laugardagur 04.02.2012

Dagskrá ÍNN

Fréttir af Mbl.is

05:30  Kostar allt að 88 milljónir
Landlæknir væntir þess að byrjað verði á aðgerðum sem fyrst. Af 41 konu með PIP-brjóstapúða sem hefur verið ómskoðuð eru 34 með leka púða. Samsvarar fjöldinn því að rúmlega 80% kvennanna séu með leka púða en gert hafði verið ráð fyrir að hlutfallið myndi nema frá 1-7%.
07:33  Aldrei fleiri borgarar fallið
Það er vetur í Afganistan. Börn standa í snjónum í flóttamannabúðum í Kabúl. Ekki hafa fleiri borgarar týnd lífi vegna stríðsins í Afganistan á einu ári og í fyrra eða samtals 3.021. NATO og afganskar öryggissveitir bera árbyrgð á 410 dauðsföllum. Þetta kemur fram í skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum.
05:30  Stöðugt færri bílar úreltir
Hrun hefur orðið í úreldingu bíla frá hruni. Segja má að hrun hafi orðið í úreldingu bifreiða frá hruninu haustið 2008. Skilagjald var greitt vegna úreldingar um 2.800 bifreiða á nýliðnu ári og hefur aldrei verið greitt vegna svo fárra bíla frá því að núverandi kerfi var tekið upp í lok árs 2004.
05:30  Hætt við lokun í Neskaupstað
Sjúkrahúsið verður
opið í sumar, en færri sjúkrarúm. Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) hefur fengið viðbótarfjármagn frá ríkinu, um 30 milljónir króna, vegna rekstrar þessa árs. Einar Rafn Haraldsson, forstjóri HSA, segir þetta gera það að verkum að ekki þurfi að loka Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í sumar, eins og til stóð.
06:50  Ekið undir áhrifum fíkniefna
Átta ökumenn voru teknir af lögreglu nótt grunaðir um annað hvort ölvunar-eða fíkniefnaakstur. Í tveimur tilvikum reyndust ökumennirnir án ökuréttinda.
05:30  Skil á flöskum og dósum slá met
Plast og ál er endurunnið og verður á ný að verðmætum. Metár var í skilum á umbúðum af drykkjarvörum á síðasta ári. Af seldum umbúðum skiluðu 86,5% sér í endurvinnslu gegn greiðslu og voru greiddar 1400 milljónir króna í skilagjald í fyrra. Er þetta hækkun um 200 milljónir frá árinu á undan.
05:31  Slydda fram á daginn
Austan- og suðaustanátt, 10-15 m/s, og rigning eða slydda fram á daginn, en sums staðar snjókoma fyrir norðan. Snýst í vestan og norðvestan 10-18 í dag, hvassast með suðurströndinni og rigning eða slydda með köflum. Hægara og úrkomulítið austanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast sunnan til.